Psalms 80

1Til söngstjórans. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur. 2Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð. 3Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar! 4Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. 5Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns? 6Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka. 7Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss. 8Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. 9Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann, 10þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið. 11Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans. 12Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins. 13Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin? 14Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann. 15Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa 16og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa. 17Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir. 18Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa, 19þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt. [ (Psalms 80:20) Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast. ]
Copyright information for Icelandic